Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 287/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 287/2023

Fimmtudaginn 24. ágúst 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. júní 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. maí 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 22. ágúst 2022 og var umsóknin samþykkt 27. september 2022. Þann 2. maí 2023 var kærandi boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem fara ætti fram í fjögur skipti á tímabilinu 8. til 16. maí 2023. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 22. maí 2023, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki mætt á boðað námskeið. Skýringar bárust frá kæranda 25. maí 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. maí 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Frekari skýringar bárust frá kæranda 31. maí 2023 og var málið í kjölfarið endurupptekið hjá Vinnumálastofnun. Með ákvörðunar stofnunarinnar, dags. 2. júní 2023, var fyrri ákvörðun staðfest þar sem sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. júní 2023. Með bréfi, dags. 12. júní 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 7. júlí 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. júlí 2023. Athugasemdir bárust frá kæranda 29. júlí 2023 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. ágúst 2023. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að hann hafi verið boðaður í vinnumarkaðsúrræði á vegum Vinnumálastofnunar þar sem hann sé á atvinnuleysisskrá. Kærandi hafi gert tilraun til að boða forföll skriflega á námskeiðið en sökum innsláttarvillu í netfangi Vinnumálastofnunar hafi tilkynningin ekki komist til skila. Kærandi hafi ekki vitað af þessum mistökum. Síðar hafi hann fengið tölvupóst um að hann yrði beittur viðurlögum þar sem hann hafi ekki látið vita af forföllum.

Kærandi hafi skoðað tölvupóstana, uppgötvað áðurnefnda villu og í kjölfarið sent Vinnumálastofnun skýringarbréf með útskýringum, bæði varðandi villuna og ástæður forfallanna. Degi síðar hafi kærandi fengið skilaboð frá Vinnumálastofnun um að fyrri ákvörðun um viðurlög stæði þar sem sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir skýringarbréf.

Kærandi skilji alveg hvað Vinnumálastofnun meini með ákvörðun sinni, enda hafi tilkynning kæranda um forföll ekki skilað sér til þeirra á réttum tíma sökum innsláttarvillunnar. Í skýringarbréfinu hafi kærandi þó sent stofnuninni skjáskot af þeim tölvupóstum sem hann hafi talið sig vera að senda þeim á réttum tíma, sem og önnur skjáskot sem styðji við útskýringar hans.

Vinnumálastofnun sé því ljóst að um hafi verið að ræða mannleg mistök en kæranda þyki ansi strangt að halda viðurlögum til streitu og fella niður bætur til hans í tvo mánuði.

Í athugasemdum kæranda kemur fram að ekki sé rétt að hann hafi sagt námskeiðshalda að hann væri í útlöndum. Hið rétta sé, eins og gögn málsins sýni, að kærandi hafi sagst vera úti á landi. Kærandi ítreki að gögn málsins sýni augljóslega að vilji til að láta vita af forföllum hafi sannarlega verið til staðar og að hann hafi gert það þrátt fyrir að hafa gert tæknileg mistök.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 22. ágúst 2022. Með erindi, dags. 27. september 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 2. maí 2023 hafi kærandi verið boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar til aðstoðar við atvinnuleit. Námskeiðið hafi verið haldið í fjögur skipti á tímabilinu 8. til 16. maí. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að boða án ástæðulausrar tafar á netfangið [email protected]. Kæranda hafi jafnframt verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Umrædd boðun hafi verið send á uppgefið netfang, með tilkynningu á „Mínum síðum“ og með smáskilaboðum í farsíma. Þá hafi kæranda verið send áminning um umrætt námskeið með sama hætti þann 4. maí 2023.

Vinnumálastofnun hafi borist tilkynning frá námskeiðshaldara þann 22. maí 2023. Stofnuninni hafi verið tilkynnt að kærandi hefði ekkert mætt á umrætt námskeið né hefði hann boðað forföll sín. Kærandi hafi greint námskeiðshaldara frá því að hann hefði sent Vinnumálastofnun póst og tilkynnt að hann væri erlendis.

Í kjölfar þess að framangreindar upplýsingar hafi borist Vinnumálastofnun hafi kæranda með erindi, dags. 22. maí 2023, verið boðið að koma að skriflegum skýringum á ástæðum þess að hann hefði ekki mætt á umrætt námskeið. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta.

Vinnumálastofnun hafi borist skriflegar skýringar kæranda þann 25. maí 2023. Að sögn kæranda hafi hann sent stofnuninni tvo tölvupósta til þess að láta vita af forföllum sínum á námskeiðið. Fyrri tölvupóstinn hafi hann sent 5. maí og seinni þann 10. maí. Hann hafi hins vegar í fljótfærni sinni gert mistök og ritað netfang stofnunarinnar vitlaust. Hann hafi ekki áttað sig á þessum mistökum fyrr en Vinnumálastofnun hafi óskað skýringa á ástæðum þess að hann hefði ekki mætt á umrætt námskeið. Meðfylgjandi skýringum kæranda hafi verið skjáskot af þeim tölvupóstum sem hann hafi ætlað að senda stofnuninni, dags. 5. og 10. maí 2023.

Með erindi, dags. 30. maí 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði sökum þess að hann hafi hvorki mætt né boðað forföll sín á umrætt námskeið. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Fyrir mistök hafi kæranda í ákvörðunarbréfi stofnunarinnar verið tilkynnt að skýringar hans hefðu ekki borist.

Vinnumálastofnun hafi borist frekari skýringar frá kæranda þann 31. maí 2023. Kærandi hafi greint frá því að honum hafi borist erindi frá Vinnumálastofnun þar sem óskað hafi verið eftir skýringum á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt á námskeiðið. Framangreint erindi stofnunarinnar hafi komið honum í opna skjöldu þar sem hann hafi tilkynnt stofnuninni um forföll sín í tvö skipti. Við nánari eftirgrennslan hafi komið í ljós að kærandi hafi slegið inn rangt netfang í þau tvö skipti sem hann hafi boðað forföll sín. Að sögn kæranda sé hann lesblindur og með athyglisbrest, sem geri það að verkum að hann eigi það til að gera skrifleg mistök. Kærandi hafi greint nánar frá ástæðum forfalla sinna á námskeiðið. Hann hafi skráð sig í skipulagða gönguferð um Austurland sem áætluð hafi verið á tímabilinu 1. til 8. maí 2023. Í gönguferðinni hafi símasamband verið stopult og hann því ekki séð boðun á námskeið fyrr en 5. maí. Í kjölfarið hafi kærandi sent stofnuninni tölvupóst og boðað forföll sín. Daginn eftir að hann hafi komið heim úr gönguferðinni hafi hann fengið slæmar fréttir og þurft að ferðast norður til að sinna fjölskyldu sinni. Hann hafi sent stofnuninni tölvupóst þann 10. maí, greint frá aðstæðum sínum og útskýrt að af framangreindum sökum gæti hann ekki mætt á námskeiðið. Kærandi hafi óskað þess að Vinnumálastofnun endurskoðaði ákvörðun sína og tæki tillit til aðstæðna hans.

Í kjölfar þess að framangreindar skýringar hafi borist Vinnumálastofnun hafi mál kæranda verið tekið til skoðunar að nýju. Með erindi, dags. 2. júní 2023, hafi kæranda þó verið tilkynnt að það væri mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hans, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist í máli hans.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Á meðal almennra skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a-lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit  en samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Atvinnuleitendum beri samkvæmt 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysisbóta, komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðað námskeið sem hafi verið haldið í fjögur skipti, eða dagana 8., 11., 15. og 16. maí 2023. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar á netfang stofnunarinnar, [email protected]. Kæranda hafi jafnframt verið send áminning um umrætt námskeið degi áður en það hafi átt að hefjast. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Jafnframt sé tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á umrætt námskeið, en þær lúti meðal annars að því að hann hafi gert mistök þegar hann hafi ritað netfang stofnunarinnar. Boðuð forföll hafi því ekki borist stofnuninni. Kæranda hafi verið veitt skýr fyrirmæli þess efnis að forföll bæri að tilkynna á netfangið [email protected]. Að mati Vinnumálastofnunar geti skýringar kæranda þess efnis að hann hafi gert mistök við ritun netfangs stofnunarinnar ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Almennt verði að gera þær kröfur til atvinnuleitenda að samskipti þeirra við Vinnumálastofnun séu rækt af vandvirkni og eftirtekt, enda séu regluleg samskipti við Vinnumálastofnun forsenda þess að atvinnuleitandi og stofnunin geti sinnt skyldum sínum samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun þyki jafnframt rétt að benda á það að í þeim tilvikum þegar tölvupóstar séu sendir á netföng sem ekki séu til, fái sendandi iðulega samstundis tilkynningu þess efnis að uppgefið netfang sé ekki til og að tölvupóstur hafi því ekki verið sendur.

Þá sé það jafnframt mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda þess efnis að hann hafi verið í gönguferð um Austurland þegar honum hafi borist tilkynning um að hann væri boðaður á umrætt námskeið séu ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt upplýsingum frá kæranda hafi hann verið í gönguferð á tímabilinu 1. til 8. maí og því misst af fyrsta degi námskeiðsins, þann 8. maí. Á atvinnuleitendum hvíli rík skylda til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og sérstaklega hafi verið áréttað fyrir kæranda að um skyldumætingu væri að ræða á námskeiðið. Með því að hafa ekki mætt á námskeiðið þann 8. maí sökum þess að kærandi hafi verið í skipulagðri gönguferð sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa ekki mætt á námskeið sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Honum beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Það sé niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 2. maí 2023 tilkynnt að hann væri boðaður á námskeiðið Atvinnuleit frá A til Ö sem yrði haldið dagana 8., 11., 15. og 16. maí 2023. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfangið [email protected]. Jafnframt var kæranda greint frá því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi var minntur á boðað námskeið þann 4. maí 2023.

Kærandi mætti ekki á námskeiðið og hefur vísað til þess að hann hafi boðað forföll í tvígang en í bæði skiptin sent tilkynningu á vitlaust netfang Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi forfallast þar sem hann hafi annars vegar verið í göngu á Austurlandi og síðar þurft að fara norður í land vegna skyndilegra fjölskylduaðstæðna. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í vinnumarkaðsúrræði sem honum var gert að sækja. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. maí 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum